EG VIL VERA BLEIK

Bleiklega orienterud sida um reynsluheim karla

laugardagur, desember 07, 2002

Samstarfsmenn hafa verið að týna tölunni síðustu vikurnar. Ef áfram heldur sem horfir vantar mig bráðlega nýjan forritara, blóðefnagræðara og heilaslettuskoðara - fylgist vel með næstu daga.

Í gær réðst einn boggullinn að okkur starfsmönnunum sem vorum að reyna að gefa honum að borða. Atferlið vakti mikla hrifningu en við ætlum samt að minnka blóðsykurgjöfina næstu vikur.

Á þessari síðu mun ég kynna rannsóknarefni mitt: Ég vinn hjá Nútímavæðingarstofnuninni og hef undanfarinn áratug verið að athuga dreififerla boggla í nánasta umhverfi.